Global site tag (gtag.js) - Google Analytics -->

Fremstir í Filmun Innréttinga

Við hjá Hönnun og Skart Innréttingaklæðningum sérhæfum okkur í að klæða filmur á innréttingar eins og eldhúsinnréttingar, borðplötur, baðinnréttingar, innihurðir, fataskápa, gluggakistur og aðra innanhúsmuni ásamt því að sérsmíða skápahurðar og skúffu framhliðar á eldri innréttingar.

Markmið okkar er að bjóða uppá hnitmiðaðar og hagkvæmar lausnir fyrir heimili og fyrirtæki er kemur að því að fegra og betrumbæta allt sem tengist innréttingum, húsgögnum og öðrum innanhúsmunum ásamt því að veita ráðgjöf varðandi lita, efnisval og aðra útlitsþætti sem skapa fallegan og nútímalegan stíl sem á endanum veita heimilinu eða vinnustaðnum fallegri og skýrari heildarmynd.

Í dag erum við leiðandi fyrirtæki er kemur að því að klæða filmur á innréttingar og veggi og spanar samanlögð starfsreynsla okkar rúm 15 ár.
Við höfum klætt filmur á ótal innréttinga og húsgögn og telja þau hundruðum, þ.m.t. eldhúsinnréttingar, innihurðir, fataskápar, baðinnréttingar, borðplötur, gluggakistur, borðstofuborð, skenki, ofl.

Einnig klæðum við veggi á milli efri og neðri innréttinga á td eldhúsinnréttingum , setjum upp sandblásturs og sólarfilmur í glugga, útidyrahurðir og önnur skilrúm þar sem gler kemur við sögu eins og gler í sturtuklefum, glerveggi og skilrúm á vinnustöðum ásamt fleiru. Til viðbótar bjóðum við uppá mikið úrval vegglímmiða fyrir alla aldurshópa sem henta vel til að skreyta veggi og gefa þeim persónulegan blæ.

Að lokum bjóðum við uppá ráðgjöf og tökum að okkur hönnun varðandi endurbætur og efnisval fyrir heimili og fyrirtæki.

Þjónusta sem við bjóðum uppá

Filmun á

- Eldhúsinnréttingar.
- Baðinnréttingar.
- Borðplötur.
- Borðstofuborð.
- Innihurðir.
- Fataskápa.
- Gluggakistur.
- Heila veggi.
- Veggi milli neðri og efri skápa í eldhúsi.
- Skenki og sjónvarpsskápa.
- Innréttingar í hjólhýsum, húsbílum ofl.
- Rúmgafla, náttborð ofl.

- Skerum út vegglímmiða í ýmsum stærðum og gerðum ásamt sérpöntunum.
- Sérsmíðum nýjar skápahurðir og skúffuframhliðar á innréttingar.

Setjum upp Sandblásturs og sólarfilmur í
- Glugga
- Útihurðir
- Sturtuklefa

- Sérsmíðum nýjar skápahurðir og skúffuframhliðar á innréttingar

Kveðja
Hönnun og Skart innréttingaklæðningar